Javascript er vefforritunarmál, hannað af hugbúnaðarfyrirtækinu Netscape, til að auðvelda hönnuðum vefsíðna að smíða gagnvirkar (á ensku "interactive") vefsíður. Javascript er algerlega óháð Java forritunarmálinu sem tölvufyrirtækinu SUN þróaði.
Sem dæmi um notkun á Javascript í vefsíðu má nefna að með því er h...
Jöklar eru myndaðir úr ís og er eitt megineinkenni þeirra að þeir skríða undan eigin þunga. Jöklar myndast þar sem meiri snjór safnast fyrir að vetri en sumarhlýindi ná að bræða þegar til lengdar lætur.
Mörkin milli svæða þar sem snjór safnast og auðra svæða þar sem hann bráðnar og hverfur eru kölluð jöklunarm...
Upprunalegu spurningarnar voru::
Ég er að vinna verkefni í efnafræði og þarf að fjalla um innvermið og útvermið. Hvað er það eiginlega?
Hver er munurinn á útvermri og innvermri efnabreytingu?
Ég var að spá hver er munurinn á innvermnu og útvermnu efnahvarfi?
Ný hugtök vefjast oft fyrir fólki í byrjun...
Sambandið oft og tíðum er gamalt í málinu. Þótt ekki virðast dæmi um það í fornum textum íslenskum þekkist það í Norsku fornbréfasafni (sbr. fornmálsorðabók Johans Fritzners) sem bendir til það það geti vel hafa þekkst á Íslandi. Elstu dæmi Orðabókar Háskólans um oft og tíðum eru frá upphafi 17. aldar en dæmi frá ...
Við erum auðvitað ekki sérfræðingar í skautaíþróttinni og getum aðeins tjáð okkur um eðlisfræðilegar hliðar málsins. Aðrir gætu svo ef til vill bætt einhverju við út frá öðrum sjónarhornum.
Kúpt blöð hokkískauta auðvelda skautaranum að stöðva sig skyndilega.
Þeir sem keppa í skautahlaupi þurfa að ná sem mestum ...
Spurninguna má ef til vill skilja á tvennan hátt. Verið getur að spyrjandi vilji vita hvað sé 0 prósent af 1, og þá er svarið 0. Orðið 'prósent' þýðir bókstaflega 'af hundraði' og segir þannig til um hversu marga hundraðshluta maður hefur af tiltekinni heild (í þessu tilfelli er heildin 1). 0 prósent merkja því að...
Það er ómögulegt að segja til um hvenær kemur aftur ísöld því vísindamenn skilja ekki fullkomlega hvað veldur ísöldum og því erfitt að spá fyrir um þetta ástand.
Hvítu svæðin sýna hámarksútbreiðslu jökla á síðustu ísöld. Brúnu svæðin voru þurrlendi á þeim tíma þar sem mikið vatn var bundið í jöklum og sjávarst...
Árni Heimir Ingólfsson stundar rannsóknir á sviði tónlistarfræði. Árni Heimir hefur aðallega fengist við að rannsaka íslenska tónlistarsögu allt frá miðöldum og fram á 20. öld. Viðamikill þáttur í rannsóknum hans eru íslensk nótnahandrit fyrri alda (frá um 1200–1800) og sá vitnisburður sem þau veita um tónlist sem...
Heimildir verða að teljast áreiðanlegar fyrir nafninu Klofajökull. Elsta heimildin er Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar 1772 (útg. 1978, bindi II:87).
Vatnajökull hefur einnig gengið undir nafninu Klofajökull.
Ólafur Olavius nefnir nafnið Klofajökull einnig 1780 (útg. 2. bindi 1965, bls. 64) og Sve...
Í aldanna rás hefur sjávarborð við strendur Íslands einkum ákvarðast af þremur breytum:
magni vatns í heimshöfunum, jarðskorpuhreyfingum af völdum breytinga á jökulfargi,fjarlægð frá rekbeltum og heitum reit sem tengist landreki.
Í fyrsta lagi er það magn vatns í höfunum en það ákvarðast einkum af því rúmmál...
Eldveggur eða netvörn (e. firewall) er búnaður sem gerir hvort tveggja að tengja innri net við Alnetið (Lýðnetið; Internetið) og takmarka samskipti milli innra netsins (enska: intranet) og Alnetsins. Eldveggurinn er á innra netinu og hefur bein samskipti bæði við tölvur á innra netinu og við tölvur á Alnetinu, uta...
Eins og fram kemur í svari Eyju Margrétar Brynjarsdóttur við spurningunni 'Hvað þýðir www?', er Internetið tölvunet sem sett er saman úr minni einingum. Þessar einingar eru til dæmis nafnaþjónar, vefþjónar og almennar notendatölvur.
Með þetta í huga má sjá að erfitt er að tala um vinnsluhraða Internetsins, á sa...
Í heild sinni hljóðaði spurningin svona:Hafa alltaf verið svona margir máfar við tjörnina? Hvernig komast andarungarnir á legg þar?Landnám sílamáfa
Talið er að sílamáfar Larus fuscus graellsii (1. mynd) hafi fyrst orpið hér á landi á árunum upp úr 1920 en varp við sunnanverðan Faxaflóa hófst ekki fyrr en upp úr 1...
Jólasálmurinn „Nóttin var sú ágæt ein“ er eftir séra Einar Sigurðsson sem var prestur í Eydölum um og eftir aldamótin 1600.
Einar fæddist að Hrauni í Aðalreykjadal í Þingeyjarsýslu 1539. Foreldrar hans voru séra Sigurður Þorsteinsson og Guðrún Finnbogadóttir. Hann ólst upp hjá foreldrum sínum en var vart komin...
Almennt er álitið að landnám smádýra tengist sjóstraumum að einhverju leyti og svo ríkjandi vindáttum.[1] Talið er að uppruna ýmissa smádýra hér á landi megi til að mynda rekja til Noregs og að hluti þeirra hafi komið með rekís þöktum einhverjum gróðri. Dýr í grýttum fjörum á Íslandi eru til dæmis þau sömu og finn...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!